Uppruni - Ameríka
Þessi ameríska grill- eða barbecue-sósa er mjög góð á kótelettur og lærissneiðar. Hana má nota bæði til að pensla lambakjötið á meðan það grillast og bera hana fram með. Einnig má láta kjötið marínerast í henni en þá er best að skafa sem mest af sósunni af kjötinu áður en það er sett á grillið og pensla svo aftur með henni skömmu áður en það er tekið af til að minni hætta sé á að það brenni.
|
|
Mjög einföld uppskrift þar sem ódýrt hráefni er gert að hreinasta góðgæti - það er að segja fyrir þá sem langar til að naga bragðmikil og brakandi rif - það er hægt að grilla rifin hvort heldur sem er í ofninum eða á útigrillinu.
|
|
Girnileg uppskrift úr uppskiftasafni Úlfars Finnbjörnssonar sem hæfir
þessu frábæra hráefni og hentar vel við ýmis tækifæri sem birtist í 9.
tbl. Gestgjafans 2008.
|
|
Lambaskankar eða leggir eru ódýr en góður biti sem best er að elda lengi við fremur vægan hita. Hér eru þeir gljáðir með barbecuesósu, bragðbættri m.a. með hvítlauk og kryddjurtum.
|
|
Á Karíbahafseyjum er reyndar allt eins líklegt að notað væri geitakjöt í þennan rétt, en hann er ekki síður góður ef notað er kindakjöt í hann. Auðvitað má líka nota lambakjöt en kjöt af fullorðnu er bragðmeira og nýtur sín betur í sterkri sósunni.
|
|
Góður grillkryddlögur sem hentar vel fyrir kótelettur og lærissneiðar sem á að grilla og bera síðan fram að karabískum hætti, t.d. með grilluðum sætum kartöflum, ananas og fleiru.
|
|
Íslenska lambakjötið klikkar ekki þegar undirbúa skal veislu. Hér er uppskrift af girnilegum lambalundum frá Úlfari Finnbjörnssyni sem birtist í veislublaði Gestgjafans 2008.
|
|
Það er ekki svo mikið mál að úrbeina lambahrygg, bara renna hnífsblaði
þétt upp við rifin öðrum megin og losa vöðvann frá og skera svo upp með
hryggjarbeinunum en gæta þess að hnífurinn fari ekki í gegnum pöruna
svo að hún verði heil. Þetta er svo endurtekið hinum megin og þá ætti
kjötið allt að vera laust frá beinunum. Munið eftir lundunum.
|
|
Gómsætur pottréttur sem á rætur að rekja til Norður-Afríku og er því góður með kúskúsi en einnig væri gott að hafa með honum soðin hrísgrjón. Í staðinn fyrir lambakjöt mætti til dæmis nota kjúkling.
|
|
Þessi einfalda uppskrift er upprunnin hjá bandaríska kvikmyndaleikaranum Mandy Patinkin og er hér tekin úr matreiðslubók móður hans, Doralee Patinkin.
|
|
Lambanýru þykja víða um heim hið mesta sælgæti. Þessi einfaldi nýrnaréttur er frá Púertó Ríkó en rætur hans liggja þó á Spáni, þar sem nýru eru einmitt gjarna soðin í sérrísósu.
|
|
Þessi kryddlögur er ættaður frá Suðvesturríkjum Bandaríkjanna og ber töluverðan svip af Tex-Mex-eldamennsku. Hann hentar sérlega vel á kótelettur, lærissneiðar og framhryggjarsneiðar.
|
|
Uppskrift 1 - 12 af 12
|
|