Eldunartími - Meðal
Meyr og gómsætur lambavöðvi, gljáður með appelsínumarmelaði og bakaður í súr-sætri appelsínu-balsamedikssósu. Uppskriftin er ættuð frá Ástralíu. Í staðinn fyrir lambavöðva mætti vel nota kindainnralæri, það er ekki síðra.
|
|
Mjög einföld uppskrift þar sem ódýrt hráefni er gert að hreinasta góðgæti - það er að segja fyrir þá sem langar til að naga bragðmikil og brakandi rif - það er hægt að grilla rifin hvort heldur sem er í ofninum eða á útigrillinu.
|
|
Okkar frábæra lambakjöt hentar við ýmis tækifæri og er sannarlega kjörið hráefni í veislumat. Hér er uppskrift að girnilegum rétti sem sómar sér vel í hvaða veislu sem er. Höfundur. Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari. Uppskriftin birtist í Gestgjafanum 3. tbl. 2007.
|
|
Girnileg uppskrift úr uppskiftasafni Úlfars Finnbjörnssonar sem hæfir
þessu frábæra hráefni og hentar vel við ýmis tækifæri sem birtist í 9.
tbl. Gestgjafans 2008.
|
|
Uppskriftir að lambahrygg í erlendum matreiðslubókum eru oftar en ekki
miðaðar við að hryggurinn (eða hluti hans) sé sagaður í tvennt eftir
endilöngu og þá er hryggsúlan líka oftast fjarlægð. Við þetta fást
kjötstykki sem er auðveldara að matreiða og skera en þegar hryggurinn
er eldaður á hefðbundinn hátt. Oft er hægt að fá þetta gert í kjötborði
verslunarinnar en ef til er þungur og góður hnífur er ekki sérlega
vandasamt að höggva hrygginn sundur heima í eldhúsi.
|
|
Þetta er réttur fyrir þá sem vilja hafa lambalærið sitt dálítið krassandi. Nota má jalapeño-pipar úr krukku í kryddlöginn; það ásamt hvítlauk og sinnepi ætti að gera réttinn vel ,,heitan".
|
|
Ekki er vitað fyrir víst af hverju rétturinn hefur þetta nafn (á frummálinu kallast hann O mezes tou bekri), en hann er ljómandi góður, líka fyrir bindindisfólk. Það er hægt að bera hann fram sem pinnamat, þar sem allt er skorið í fremur litla bita og borið fram í sósunni.
|
|
Eitt vinsælasta hráefnið á grillið er án efa íslenska lambakjötið. Það er bragðgott, mátulega feitt og svo er líka auðvelt að grilla það. Það er alltaf hægt að slá í
gegn með lambakjöti sama hvert tilefnið er, það á alltaf við og verður alltaf hinn
klassíski, íslenski grillmatur. Hér er uppskrift úr smiðju Úlfars Finnbjörnssonar, matreiðslumeistara sem birtist í Grillblaði Gestgjafans 2007.
|
|
Gómsætt, úrbeinað lambalæri að hætti Marokkóbúa, kryddað með chermoula, sem er kryddjurta- og kryddblanda sem mikið er notuð þar um slóðir. Kjötið má grilla hvort heldur sem er á útigrilli eða í ofni.
|
|
Það er dálítið indverskur keimur af þessum kótilettum, þar sem þær eru marineraðar í karríkryddaðri jógúrt áður en þær eru grillaðar. Svo má líka nota meira karrí í kryddlöginn ef þess er óskað.
|
|
Lambaframhryggur er góður biti og vel fitusprengdur, þannig að kjötinu
hættir síður við að þorna en ýmsum öðrum bitum. Gott að gefa þeim langan tíma á grillinu við
fremur vægan hita. Uppskrift úr smiðju Úlfars Finnbjörnssonar,
matreiðslumeistara sem birtist í Grillblaði Gestgjafans 2007.
|
|
Lambaframhryggur er góður biti og vel fitusprengdur, þannig að kjötinu hættir síður við að þorna en ýmsum öðrum bitum, ekki síst ef sneiðarnar eru þykkt sagaðar. Þá er gott að gefa þeim langan tíma á grillinu við fremur vægan hita.
|
|
Kótelettur eru alltaf vinsælar á grillið og það er gott að láta þær liggja í kryddlegi drjúga stund áður en þær eru grillaðar. Afganginn af kryddleginum má svo nota út í sósu á kóteletturnar, eins og hér er gert.
|
|
Einfaldari gerist marineringin varla - laukur, sítróna og ólífuolía. Hér eru notaðar lundir en einnig mætti nota marineringuna á hvaða lambakjötsbita sem er.
|
|
Það er afskaplega einfalt að baka brauð á grillinu og bera fram nýbakað og heitt brauð með lambakjötinu. Þessi smábrauð væri til dæmis hægt að baka þegar búið er að taka lærið af grillinu - það hefur hvort eð er gott af að standa nokkra stund áður en það er skorið.
|
|
Hægt er að gera ýmislegt við lambalifur annað en steikja hana á pönnu og bera fram með brúnni sósu. Hafið þið til dæmis prófað að skera hana í bita og steikja á teini?
|
|
Lambakjöt er í miklum metum meðal Grikkja og þeir kryddað það yfirleitt og matreiða á fremur einfaldan hátt - nota kryddjurtir, ólífuolíu og sítrónur.
|
|
Í þessa uppskrift má jafnvel nota súpukjöt en framhryggjarsneiðar eru líklega bestar. Það skiptir máli að kjötið sé vel fitusprengt en magrir eða fitulausir bitar henta ekki í þennan rétt, það kjöt verður ekki nógu safaríkt og mjúkt.
|
|
Þessir fylltu tómatar eru tilvalið meðlæti með lambakjöti, bæði grilluðu, ofnsteiktu og pönnusteiktu kjöti. Prófið t.d. að bera þá fram með steiktum lambahrygg eða með lambakótelettum.
|
|
Um og upp úr 1980 varð mjög vinsælt á Íslandi að grilla lambakjöt í gryfju sem grafin var í jörðina og tyrft yfir. Þetta er enn algengt, enda mjög hentug aðferð þar sem aðstæður leyfa. Gott er að krydda kjötið með nýtíndu blóðbergi.
|
|
Gómsætur grillréttur úr meyru lambakjöti. Sósan krefst dálítillar fyrirhafnar en bragðið bætir það fyllilega upp.
|
|
Sérlega góður lambakjötsréttur sem hentar í hvaða veislu sem er, til dæmis á jóla- eða páskaborðið.
|
|
Þessi suður-evrópski lambakjötsréttur er bragðmikill og góður og hentar vel fyrir skanka eða annað kjöt sem þarf langa og hæga eldun. Grænmetið er eldað með kjötinu.
|
|
Hvítlaukur er krydd sem flestum þykir eiga einkar vel við lambakjöt. Það er sannarlega ekki verið að spara hvítlaukinn í þessari uppskrift en það er einmitt hann sem gerir bragðið svona gott.
|
|
Þetta hvítlauksmettaða mauk má nota til að bragðbæta ýmsar heitar og kaldar sósur sem bornar eru fram með lambakjöti, svo og súpur og pottrétti.
|
|
Í þennan norður-indverska grillrétt er ekki notað neitt sterkt krydd og hann ætti því að henta fyrir þá sem ekki eru hrifnir af sterkkrydduðum mat en vilja engu að síður njóta indverskrar matargerðar.
|
|
Gómsætur indverskur karríréttur, kryddaður að norður-indverskum hætti - ekki of sterkur en það má þó vel hafa hann sterkari eða mildari eftir smekk.
|
|
Uppskrift 1 - 30 af 114
|
|