Eldunaraðferð - Pönnusteiking
Meyr og gómsætur lambavöðvi, gljáður með appelsínumarmelaði og bakaður í súr-sætri appelsínu-balsamedikssósu. Uppskriftin er ættuð frá Ástralíu. Í staðinn fyrir lambavöðva mætti vel nota kindainnralæri, það er ekki síðra.
|
|
Lambalundir eru að margra áliti allra besti bitinn af lambinu. Þær eru mjög meyrar og mildar og þurfa afar stutta eldun. Hér eru þær snöggsteiktar, flamberaðar með brandíi (einnig má nota t.d. viskí eða annað áfengi) og síðan búin til rjómasósa.
|
|
Ekki er vitað fyrir víst af hverju rétturinn hefur þetta nafn (á frummálinu kallast hann O mezes tou bekri), en hann er ljómandi góður, líka fyrir bindindisfólk. Það er hægt að bera hann fram sem pinnamat, þar sem allt er skorið í fremur litla bita og borið fram í sósunni.
|
|
Stundum verða töluverðir afgangar af jólahangikjötinu og þótt það sé afskaplega gott eins og það kemur fyrir vilja margir tilbreytingu þegar að því kemur að nýta leifarnar. Það er sannarlega hægt að gera fleira en að bera kjötið fram kalt eða hita það í tartalettum; satt að segja henta margar uppskriftir sem ætlaðar eru fyrir skinku, hamborgarhrygg eða annað reykt svínakjöt ágætlega fyrir hangikjöt líka og það er óhætt að leyfa hugmyndafluginu að ráða svolítið.
|
|
Sérlega góður lambakjötsréttur sem hentar í hvaða veislu sem er, til dæmis á jóla- eða páskaborðið.
|
|
Þessi réttur og íslenskt kjöt í karríi eiga satt að segja ákaflega fátt sameiginlegt nema nafnið og lambakjötið. Þetta er þó dálítið einfölduð útgáfa af indverskum karrírétti, indverskar húsmæður væru líklegar til að nota fleiri kryddtegundir en hér er gert og steikja kjötið upp úr ghee (skírðu smjöri). En rétturinn er gómsætur engu að síður. Garam masala er indversk kryddblanda, til í ótal útgáfum (nafnið þýðir bara ,,sterk blanda”) sem yfirleitt er ekki notuð út í réttinn, heldur stráð yfir hann í lokin eða þegar hann er kominn á borðið.
|
|
Risotto er norður-ítalskur þjóðarréttur sem getur innihaldið nánast hvað sem er þótt grunnaðferðin sé alltaf sú sama. Reyndar eru til einfaldri aðferðir en það er bara alls ekki risotto ...
|
|
Í þennan kínverska lambakjötsrétt eru notaðar sykurbaunir og mjög smátt skornar gulrætur sem þurfa stutta suðu, en einnig mætti nota annað smátt skorið grænmeti sem þarf skamma eldun, svo sem spergilkál.
|
|
Kínverjar sjálfir mundu sennilega ekki nota lambakjöt í þennan rétt en það er vegna þess að þar er lítið um sauðfé nema í norðurhéröðunum. Þessi uppskrift hentar þó mjög vel fyrir meyrt lambakjöt, t.d. af læri.
|
|
Fljótlegur og einfaldur austurlenskur lambakjötsréttur. Notið meyrt kjöt og skerið það mjög þunnt, þá þarf aðeins að steikja það í örfáar mínútur. Í staðinn fyrir hrísgrjón mætti líka hafa núðlur með kjötinu.
|
|
Léttur, nútímalegur og gómsætur lambakjötsréttur á mexíkóskum nótum, réttur sem hentar sérlega vel fyrir ungt fólk sem vill litríkt meðlæti og mikið bragð.
|
|
Íslenska lambakjötið klikkar ekki þegar undirbúa skal veislu. Hér er uppskrift af girnilegum lambalundum frá Úlfari Finnbjörnssyni sem birtist í veislublaði Gestgjafans 2008.
|
|
Framhryggjarfillet er að margra mati besti bitinn af lambinu og svo mikið er víst að það er auðvelt að elda marga gómsæta rétti úr þessum meyra og safaríka bita. Hér er kjötið snöggbrúnað og síðan brugðið í ofn í smástund.
|
|
Lambakjötið er „inn“ í haust. Í nóvember blaði Gestgjafans kynnir Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari gómsæta rétti úr nýju lambakjöti og innmat.
|
|
Þessi lambakjötsréttur er algjört sælgæti. Appelsínusósan, sem er örlítið súrsæt, á sérstaklega vel við lambakjötið
|
|
Gómsætt salat undir ítölskum áhrifum.
|
|
Lambakjöt er ekki sérlega algengt í pastaréttum en á þó mjög vel við í sumum þeirra. Hér er pastað til dæmis með sneiddum lambalundum og steiktum eggaldinsneiðum og svo er sett á það frískleg og góð kryddjurtasósa.
|
|
Sparilegur pastaréttur með meyru lambakjöti, ristuðum paprikum og góðri tómatpastasósu - alvöru ítalskur veisluréttur.
|
|
Þunnt skornar sneiðar af meyru lambakjöti, snöggsteiktar og bornar fram á beði af góðum salatblöðum - sannkallaður veisluréttur, frábær sem forréttur en gæti svo sem líka verið aðalréttur, ekki síst á hlýjum sumardegi.
|
|
Sannkallað sumarsalat sem tilvalið er að bera fram sem léttan hádegisverð á fallegum sumardegi en getur líka alveg gengið sem forréttur - líka um miðjan vetur.
|
|
Einkar girnilegt lambakjötssalat sem tilvalið er að bera fram sem aðalrétt en getur reyndar einnig verið forréttur fyrir marga eða smáréttur í veislu. Miðað er við að það sé borið fram heitt eða volgt en það má líka bera það fram kalt.
|
|
Kótelettur eins og þær voru hjá mömmu og ömmu á sunnudögum hér áður fyrr - velt upp úr raspi og síðan pönnusteiktar í smjörlíki.
|
|
Það er kannski ekki alvanalegt að bera fram pasta með lambakótelettum en í uppskriftinni sem hér kemur á þetta tvennt þó einkar vel saman. Ólífurnar og sítrónusafinn gefa kótelettunum gott bragð.
|
|
Lambakjötið er „inn“ í haust. Í nóvember blaði Gestgjafans kynnir Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari gómsæta rétti úr nýju lambakjöti og innmat.
|
|
Lambanýru þykja víða sælgæti og það eru ekki síst Bretar sem hafa dálæti á þeim. Þessi uppskrift er skosk að uppruna.
|
|
Oft fer vel á því að hafa sterka sósu með innmat eins og t.d. lambanýrum. Einungis þarf að gæta þess að elda nýrun ekki of lengi - þau þurfa stutta eldun.
|
|
Uppskrift 1 - 30 af 53
|
|